Kristjana Árnadóttir

Kittý Kittý bang bang

24.12.2007 02:00:48 / kristjana

Gleðileg jól

Eitt pínu litið blogg í tilefni jólanna... :)

Fyrstu jól Evu Natalie eru við það að ganga í garð. Hér á bæ er næstum allt tilbúið... klárum að pakka inn pökkunum á morgun og síðan eru það bara jólin... Þessi jól ætlum við að halda upp á heima hjá ömmu Ölmu og afa Nonna... en kíkjum til afa Árna og ömmu Helenu seinna um kvöldið og opnum pakkana okkar sem eru þar :)

en þetta er bara pínu lítið blogg og smá jólakveðja í lokin :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 06:59:46 / kristjana

Elsku hjartans Ásta Lovísa...



Fréttamynd 429392

Þessi yndislega fallega kona er fallin frá, þjóðarhetja Íslands.

Ásta Lovísa var sannur engill í mannsmynd. Hún bloggaði opinskátt um veikindin sín og maður kynntist henni vel í gegnum bloggið hennar. Ég komst í samband við hana eftir umræðu sem hún setti inn á barnaland og óskaði þar eftir kraftaverkasögum, þá nýgreind með meinið., og hef ég fylgst með henni frá þeim degi. Allt sem hún skrifaði á blogginu sínu vakti athygli manns og maður fylgist með frá degi til dags og oft á dag.
Hún átti hug og hjörtu þjóðarinnar með einlægum skrifum sínum og baráttuvilja.
Hún er ein af þeim sem ég lít upp til, ein af mínum hetjum ásamt Jóa mínum, Lilju og Dýrleifu, en öll eiga þau það sameiginlegt að falla frá vegna krabbans.

Ég "á" fjóra engla upp í himnaríki, sem er fjórum englum of mikið.

Elsku Ásta Lovísa, minning þín lifir í hjörtum þjóðarinnar um ókomna tið og við vitum að þú vakir yfir börnunum þínum og honum Didda þínum og gefir þeim styrk og hlýju til að komast í gegnum komandi tíma.

Seinustu orð Ástu á blogginu sínu:
"Knús á ykkur og prufið að byrja daginn á því að brosa, þakka fyrir daginn í dag og opna fyrir hjartað... Er það DÍLL ???"

Kæra fjölskylda,
Kristófer Daði, Embla Eir, Írena Rut, Diddi, Daði og aðrir, mínar innilegustu samúðarkveðjur vegna fráfalls Ástu "okkar". Megi minning hennar lifa og færa ykkur yl í hjarta og bros á vor í gegnum lífið.

Kær kveðja

Kristjana Árnadóttir


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 12:23:43 / kristjana

Jæja... verður maður ekki að vera með...

....eða hvað.. allavega eru mamma og Eiki búin að skella inn á þeirra blogg einhverjum fréttum og verð ég ekki að gera það hér líka.. eða bara að hafa ykkur forvitin???

En allavega fyrir þá alla forvitnustu er eitthvað um málið HÉRNA

Stutt í dag.....


» 17 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 10:39:55 / kristjana

Árshátíð - flutningar - KVEFógeð

Jæja.. þá er maður bara lagstur í flensu....VIÐBJÓÐUR....!!!at wits' end - New!

Helgina 2.-4. mars vorum við í Keflavíkinni á árshátíð hjá Hitaveitu suðurnesja.
Við s.s komum á milli 6 og hálf 7 á föstudagskvöldið, fórum upp á hótel og skildum töskurnar eftir og fórum svo og fengum okkur bara kfc að borða. Eftir það var haldið í hús Hitaveitunnar og sest og spjallað, horft á x-factor á vælupúkana þar, og svo var farið í singstar. Skemmtum okkur fínt en vorum samt komin upp á hótel upp úr 1.

Á laugardeginum vöknuðum við bara nokkuð snemma... fórum í morgunmat á hótelinu og svo bara upp aftur og lögðum okkur til hádegis. Þá fórum við út og þð fyrsta sem við þurftum að gera var að finna einhverja búð og kaupa naríur á Eika... þar sem hann er nú svo mikill snillingur að hann tók hvítu jakkafötin sín sem hann ætlaði að vera í og svo DÖKKgráar naríur innanundir... SMART!!!rolling on the floor
Þegar naríurnar voru fundnar fórum við í Sandgerði, LOKSINS að heimsækja litlu bjútíbínuna sem á heima þar, hana Emmu Rós. Þvílíkt krútt sem hún er.. og svo er hún alveg eins og mamma sín. Svo kom hann Haffi alla leið úr Reykjavík að heimsækja þær mæðgur og fór svo með okkur inn í Keflavík aftur. Fengum okkur þá að borða á pulsubarnum, og svo var brunað aftur inn í Sandgerði.. eða út í sveit og farið að Wilson Muuga... hafði aldrei komið þangað...blushing Ennnnnnn svo var það bara hótelið upp úr 5 og við í sturtu og að taka okkur til. Vorum komin upp á herbergi til Vidda og Svövu rétt fyrir 7 og fórum svo með þeim, Magga, Önnu Báru, Heiðari og Guðrúnu inn í Stapa. Þar áttum við frátekið borð með Möggu og Víði, hehe og fannst manni nú frekar skrítið að horfa inn í salinn þar sem að megnið af fólkinu var í RAUÐUM fötum... því það var nú rautt þema....hehe.
Þetta var bara mjög fínt og gaman og góður matur.. þó maður hefði ekki getað klárað allt... stóð algjörlega á blístri eftir hálfan disk....surprise Eftir matinn var Eiki kominn í svooo mikið stuð að hann dansaði úr sér allt vit og dansaði við hinar og þessar konur. Sumar reyndu að hafa í við hann .. en höfðu ekki og löbbuðu af gólfinu bara í andköfum..haha.. bara fyndið.
En um hálf tvö var ég orðin þreytt og fór bara upp á hótel á meðan Eiki hélt áfram að dansa... en hann kom svona hálftíma seinna.

Á sunndeginum tókum við daginn aftur snemma, vöknuðum í morgunmat og fórum svo aftur og lögðum okkur þangað til við áttum að tékka okkur út. Vorum farin úr Keflavík upp úr hádegi og komin heim í okkar rúm um klukkutíma seinna.. þar sem ég varð að kíkja í eina búð þegar ég kom í bæinn og svo var bara ekkert merkilegt til þar.
Restin af deginum fór bara í leti og meiri leti...

Vikan var svo fljót að líða... Eiki byrjaði í meiraprófinu og verður þar öll kvöld út þennan mánuð, svaka stuð... ég bara í skólanum og að vinna.

Núna um helgina var ég að vinna og pabbi og Helena að flytja... tókum seinnipartinn á laugardeginum og fluttum allt dótið.. svo fór ég að vinna og kom í nýja húsið.. (sem verður reyndar bara tímabundið) þegar ég var búin í vinnu kl 22 og við næstum kláruðum að taka upp úr öllum kössum um kvöldið og ganga frá húsgögnum og við vorum svo komin heim aftur bara um 1. Ég fór að vinna aftur í gær í hádeginu og svo aftur eftir kvöldmat fórum við til pabba og Helenu og kláruðum það sem átti eftir.. og ekki tók þetta langann tíma... nú er allt orðið bara voða kósý og fínt. Tók ekki langann tíma...big grin

En svo gerðist það núna um helgina að ég náði mér í kvefpesti... bara ÓGEÐ... fæ líka alltaf svo mikið kvef... er algjörlega stífluð... hnerrandi í tíma og ótíma, með hausverk, eyrnaverki, í hálsinum og hósta... jeijjjjj... skemmtilegt....NOT... svo ég ætla mér bara að vera heima í dag og sleppa skólanum...nerd þó ég hafi nú nóg að gera þar. Enn.. það verður að bíða bara.

Ætla að láta þetta gott heita...

- knús og kossar -

Kristjana með vic krem í annarri og c-vítamín í hinni....surprise

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 15:12:19 / kristjana

Ritstífla?

Hvað segiði?? það hefur nú kannski verið smá ritstífla og ekki ritstífla á þessum bæ undanfarið...

Ég var í því að klára öll verkefnin mín fyrir lok áfangans og náði ég því og er bara nokkuð sátt með útkomuna þaðan. Fékk 8 í lokaeinkunn, þrátt fyrir lélega einkunn á skissubók... (svona því ég nota ekki skissubækurconfused En ég er nú samt bara ánægð með þetta því ég er svo með 98-99% mætingu í áfanganum ekki eins og helmingurinn af hópnum sem féll á mætingu...surprise og sumir sem ekki skiluðu öllum verkefnum og svona... fúllt.. því þau komast svo ekki áfram núna í næsta áfanga sem er fram á vor og er bara eitt stórt lokaverkefni... oooog hef ég ekki hugmynd hvað ég á að gera...!!! Svo óþæginlegt að mega velja algjörlega frjálst... en ég hlýt að finna út úr því..happy

Núna um helgina erum við Eiki að fara á árshátíð í vinnunni hjá honum og verður hún haldin í Keflavík í þetta skiptið. Við gistum á hótel Keflavík og förum á morgun og verðum í tvær nætur, og svo er sjálf árshátíðin haldin í Stapanum á laugardagskvöldið..... shiiiiii og ég á enn eftir að kaupa mér föt... Veit EKKERT í hverju ég vil vera... var búin að finna mér flottan kjól á klink.. en svo þegar ég ætlaði að kaupa hann 2 dögum seinna að þá var hann búinn...sad Svo ég ætla að draga Eika með mér í smáralindina í kvöld og ég bara verð að finna eitthvað...

Góðar fréttir....!!! Hún Ragga mín í Ljósmyndavörum bjallaði í mig á mánudaginn og var svona að forvitnast hvort ég væri búin að ráðstafa sumrinu mínu með vinnu og annað, sem ég er btw ekki búin að gera og sagði henni það. Þá sagðist hún eða þau þarna myndu endilega vilja fá mig aftur í sumar og svo gæti ég verið áfram í vetur ef ég vil. Ég þáði þetta boð og ætla mér að fara þangað strax um leið og fyrsta, seinasta og eina prófið mitt er búið í maí.. sem er held ég bara 3. eða 4. maí.batting eyelashes og svo er ekki útskrift fyrr en laugardaginn 19. maí svo ég fæ bara sumarfrí snemma.batting eyelashes

Næst á dagskrá er að reyna að komast kannski norður yfir heiðar um páskana eða seinstu vinnuhelgina mína í Megasól... en þá fermist Berglind. Þarf að setjast bara niður og skoða þetta vel og vandlega.

Liðnir dagar.... Ég og Eiki kíktum á Írenu og Steina seinasta laugardag og var það bara alveg hreint ágætt... Gylfi kom líka og vorum við bara að spila á gítar, syngja og spjalla og svo enduðu strákarnir í bænum og við tvær á rúntinum. Fínt kvöldwinking
Sömu helgi, bara á föstudeginum fengu Helga og Jónas íbúðina sína afhenta loksins og var hafist handa að mála og græja og gera, og fluttu þau dótið sitt svo yfir um helgina og skila sinni íbúð í dag/kvöld.

Eins er það með pabba og Helenu að þau flytja eftir viku ca. í leiguíbúð þangað til þeirra hús verður tilbúið, en þau afhentu bílskúrinn í gær og er hann núna fullur af dóti sem fólkið á sem er að flytja inn.

Ég hinsvegar var að skoða www.mbl.is/fasteignir um daginn og sá líka þessa ótrúlega flottu íbúð í Njarðvík, glæný og afhendist með öllum auka-raftækjum sem maður þarf... s.s ískáp, uppþvottavél, þvottavél og þurrkara og öll gólfefni... En einhverntíman kemur að þessu að maður flytur í sína eigin íbúð...daydreaming - New!

En heyrðiði ég ætla að láta þetta gott heita í bili... þið megið endilega skilja eftir ykkur lítið kvitt...

P.s. var að setja inn örfáar myndir í viðbót inn á www.123.is/kristjana myndir af Elísu... svona smá flipp eftir að við tókum skólaverkefnið mitt..winking

- knús og kossar -

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 09:48:45 / kristjana

Helgin....

Þá er helgin afstaðin og enn ein vikan byrjuð...

Á föstudaginn þá var ég bara í skólanum til hádegis og svo að vinna til kl 5 og fór þá heim.....oooog hvað haldiði... Eiríkur sofandi.... haha... svefnpurrkan...tongue Mamma hans og pabbi voru á leiðinni út að borða í Perluna og við því ein heima og brunðum á Nings og fengum okkur í gogginn... komum svo heim og horfðum á x-factor...
OMG... hvað það fer í taugarnar á mér hvernig hún Halla er á sviðinu... það er eins og það sé spíta upp í $%#&$ aha... hún er svo stíf og eitthvað ekki eins og hún á að vera... þó hún hafi lagast til muna á milli þátta... HAHA fyndin...big grin

Á laugardaginn vöknuðum við í kringum hádegið og brunuðum upp á sólbaðstofu og ég fór í einn tíma og Eiki beið á meðan og horfði á leikinn og var orðinn frekar spenntur undir lokin og bara varð að fá að klára... hehe..sá sem horfir aldrei á íþróttir í sjónvarpinu...surprise
Svo fórum við í smá ráp og vorum svo heima í Breiðuvíkinni hjá Karen um kvöldið... og komu Írena og Steini í mat og vorum við svo bara með kosýkvöld...big grin bara næs....
Pabbi og Helena fóru á þorrablót og Hlynur bróðir í bústað og vorum við heima til að verða kl 2 og fórum þá og ætluðum að stoppa í bara 1 mín upp á verkstæði hjá strákunum... en endaði þannig að við vorum komin heim um hálf 5...surprise aldeilis löööööng 1 mínúta... hehe

Í gær vorum við bara í leti... vorum heima fram að kvöldmat og fórum eftir hann til Írenu og Steina og sátum þar til rúmlega 10 og fórum þá heim...

En á laugardaginn var litla jólaprinsessufrænka mín skírð og fékk það fallega nafn Helga Dís... en er náttúrulega bara bjútí enda ekki langt að sækja þaðbig grin
Ennnn... skírnin var á Akureyri svo við komumst ekki...
Svo ég óska ykkur bara til hamingju með skvísuna Fanney og Hafsteinn... og vonandi hefur dagurinn verið frábærbig hug

En eins og alltaf er allt að verða brjálað í skólanum... öll verkefnaskil alltaf á sama tíma og allir að ýta á eftir manni....at wits' end - New! bara pirrandi...

Hafiði pælt í einu...?? Hvað maður er virkilega heppinn að vera með fulla heilsu og geta gert í raun það sem manni langar til...!
Ég hef verið að fylgjast með nokkrum bloggum hjá hinum og þessum og váááá hvað það eru margir ungir sem eru að berjast við krabbamein... og eru að gera það af einskærri einlægni og blogga um sína líðan.
Eitt blogg sem ég les ALLTAF það er hjá Ástu Lovísu... hún er svoooo dugleg að ég dáist af henni... og eins með hana elsku litlu Þuríði Örnu hún er hetja út í gegn. Maður fær tár liggur við í augun á því að lesa þessi tvö blogg t.d. og vona ég svo innilega að þær sigri sínar baráttur...big hug 

En ég held ég ætli að láta þetta nægja í bili... þarf að fara að taka mig til fyrir skólann og svona...big grin

Sendi bara STÓÓÓR knús á línuna...big hug

» 11 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 09:36:39 / kristjana

.

Hvað segiði?? Tími á blogg?

Veit ekki hvort ég sé eitthvað nenna þessu... nóg að gera í skólanum og er með dagbók þar sem ég þarf að skrifa á hverjum degi svo það er nóg finnst mér...rolling eyes

En síðan ég skrifaði seinast hefur ekki mikið gerst skal ég segja ykkur... ég er bara í skólanum þessa 3 daga í viku og vinna hina dagana og 3 sinnum í bootcamp sem er fínt fyrir utan þessa helv%"# beinhimnubólgu sem ég fæ og illt í hnéið síðan í fyrstu vikunni þegar ég flaug á hausinn einn tímann og er enn aum...sad

En núna eru s.s verkefnin í fullum gangi í skólanum og er ég alveg að verða búin með eitt verkefni sem ég á að skila eftir viku... en þar fékk ég Elísu til að sitja fyrir og eru þær bara þrælgóðar þó ég segi sjálf frá...enda Elísa súpermódel... híhí applause

Viljiði sjá myndir....??? hmmm...reyndar ekki verkefnamyndirnar heldur bara svona nokkrar myndir sem við vorum að leika okkur að taka með hinum....

Hvað segiði... er þetta eitthvað sem ykkur lýst á...??
Gaman að svona myndum... ennn... því miður þá verður þetta ekki lengra í bili þar sem tíminn er búinn og ég í eyðu.... batting eyelashes

Svo ég segi bara... bæ í bili... þangað til seinna... hvenær sem það verður....


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 15:00:24 / kristjana

Bootcampið, skólinn og vinnan...

Bootcampið... skólinn... vinnan... nóg að gera....

Bootcampið er mjöööööög gaman... erfitt... en gaman...winking Maður er svo ferskur þegar ég mæti í skólann að það er bara fínt... Hef reyndar átt smá erfitt með að sofna þegar að það er tími morguninn eftir...en vonandi fer það eitthvað skánandi þegar ég er að vinna hina dagana og þarf að vakna þá líka.winking

Skólinn byrjaði með látum 8. jan og hefur ekkert slaknað á því síðan... alltaf nóg að gera. Erum að gera 2 stór og 1 minna verkefni sem eiga að vera tilbúin fyrstu 2 vikurnar í febrúar og er maður að vinna í því að koma sér af stað... safna efni og svona ýmsu til að vinna með. Er komin með módel í litla verkefnið mitt... hana Elísu frænku...náði að sannfæra hana í þaðbig grin Svo er annað stóra verkefnið bara enn í hugmyndavinnu... en það eru 2 mismunandi verk sem eru í boði... "að vera íslendingur" og "persónuleg upplifun" og á ég eftir að taka endanlega ákvörðun um það hvort þeirra ég tek.... en hvað finnst ykkur?? hvað finnst ykkur það að vera íslendingur?

Svo er það vinnan... ég fæ að vinna þá daga sem ég er ekki í skólanum svo að þá verð ég líka í fríi á kvöldin sem er fíntbig grin
Ég á frí um helgina... en þegar ég á frí tekur Eiki að sér aukavinnu...surprise ohhh... það verður bara að hafa það.....winking

En jæja.. ég hef svo sum ekkert mikið að segja þar sem ég hef EKKERT gert fyrir utan það að vera í skólanum, vinna og í bootcamp...

C'ya later......


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 10:05:12 / kristjana

Janúar byrjar með látum...:D

Þá er árið 2007 gengið í garð... fyrir reyndar rúmri viku síðan....

Árið 2006 var bara nokkuð gott ár í mínu lífi þó það hafi verið verra hjá öðrum og öllum þeim sem að misstu ástvini á árinu.
Ég ætti kannski að stikla á stóru hvernig árið mitt var...

  • Í janúar þá byrjaði ég í Borgarholtsskóla fór þar á margmiðlunarbraut og þar sem ég var búin með hluta af listnámsbraut í VMA og sitthvað í Iðnskólanum í Hafnarfirði að þá fór ég strax inn á seinnihluta annars árs og er því að klára núna í vor. Önnin gekk vel fyrir sig og ég kláraði hana með góðum einkunnum.big grin Helena átti afmæli og varð 33 ára. big hug
  • Í febrúar seldum við Golfinn minn og fékk ég bara peninginn beint í vasann og svo viku seinna seldum við, eða settum Audi-inn upp í nýja bílinn sem við keyptum okkur 24. febrúar... þegar við vorum búin að vera saman í 6 mánuði upp á dag... haha.. góð "afmælisgjöf" það.big grin Keyptum okkur 2006 árgerð af Toyotu Avensis og erum við alveg ótrúlega ánægð með hann og er ég ekkert á leiðinni að losa mig við hann á næstunni.winking En einnig gerðist eitthvað sem maður óskar engum, en stelpa að norðan, Ásdís Hanna missti unnusta sinn hann Tómas, gamlan vinnufélaga og Gulla frænka sinn besta vin. Þær hafa verið með endæmum duglegar að takast á við erfiðleikana og vona ég að þetta ár eigi eftir að vera þeim alveg frábært. happy
  • Í mars átti ég loks afmæli... var 21 árs og okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt... ég gaf Eika kosti... að fara norður til Akureyrar og vera þar í smá tíma eða eyða aaaaaaðeins meiri pening og fara til Köben og skemmta okkur þar og vera yfir afmælisdaginn minn, og völdum við það. Fórum og vorum í 5 daga og skemmtum okkur konunglega og versluðum og gerðum HELLING. Bara gaman.happy Komum heim og beint í fermingarveislu hjá Söndru helgina eftir og vorum við það sniðug að við keyptum allar fermingargjafirnar fyrir þetta ár í Kaupmannahöfn.
  • Í apríl komu mamma og Ingunn heim. Ingunn fermdist með gamla bekknum sínum 8. apríl í Glerárkirkju og var mikið um manninn í veislunni og fórum við þá í fyrsta skipti á bílnum okkar norður. Við Ingunn og Alexandra fórum saman í myndatöku hjá Dagsljósi.
    Svo í lok apríl eða 23. að þá fermdist Hlynur bróðir í Grafarvogskirkju og sama var þar eins og hjá Ingunni, hellingur af fólki og fórum við familían saman í myndatöku hjá Ásdísi sem ég var að vinna hjá.
  • Í maí þá fékk ég ömurlegt símtal strax á fyrsta degi mánaðarins, frá henni Díönu og það á afmælisdaginn hennar... Lilja frænka hennar og baráttuvinkona Jóa míns heitins tapaði sinni baráttu aðfaranótt 1. maí og á verkalýðsdaginn sjálfan og hún í framboði.
    Annað lítið gerðist þennan mánuðinn... ég tók reyndar fermingarmyndirnar af Arnari Geir frænda og gerði þær klárar fyrir ferminguna. Kláraði prófin og byrjaði að vinna í Ljósmyndavörum.
  • Í júní fór ég 2 sinnum norður. Í fyrra skiptið um hvítasunnuhelgina í fermingu hjá Arnari og á reunion hjá Síðuskóla og var það ótrúlega gaman að hitta alla gömlu bekkjarfélagana aftur.. eða flesta þar sem sumir gátu ekki mætt. Svo fórum við aftur á bíladaga og auðvitað til að "hreilsa upp á" Jóa minn á afmælisdaginn hans 17. júní og keyptum nýjan engil á leiðið og gerðum fínt.happy
  • Í júlí vorum við mest megnis bara að vinna... skruppum dagsrúnt austur að Gullfoss&Geysi og svo varð Eiki 23 ára gamall... kom reyndar smá babb í bátinn þennan mánuðinn... við áttum pantaða ferð til mömmu, út 10. ágúst og heim 27. á sunnudegi, en fengum þær fréttir að Magga og Víðir væru að fara að gifta sig á laugardeginum 26. og vildu að ég tæki myndir svo við breyttum ferðinni og færðum hana fram um 2 daga.happy Magga og Víðir eignuðust strák 7. júlí og Tommi og Larisa líka 2. júlí.. s.s ég eignaðist lítinn ská bróðir.happy
  • Í ágúst vorum við bara heima um versló þar sem við vorum að fara út strax aftir helgina. Á sunnudeginum um versló vöknuðum við upp við hræðilegar fréttir... Rósa Björg frænka Eika hafði lent í bílslysi um nóttina og lést. crying
    Jarðaförin var á meðan við vorum úti svo við misstum af þeirri kveðjustund. Mamma átti afmæli 4. ágúst... orðin 40 ára og alltaf eins og unglamb, big hug og Hlynur bróðir varð 14 ára 12.
    Við fórum út 8. ágúst og vorum í Noregi í 3 daga áður en við fórum til Berlínar í helgarferð. Það var SNILLD og væri ég alveg til í að fara aftur og eiga þá lengri tíma þar og vera kannski á hóteli nær bænum þar sem Cristian vinur mömmu ruglaðist eitthvað á staðsetningunni á hótelinu og við vorum um 30 km frá miðbænum og þurftum að taka leigubíl í 30 mín út á morgnanna og aftur heim á kvöldin því ekki treystum við okkur til að taka lestar og strætó því það var víst svo flókið var okkur að minnsta kosti sagt í lobbýinu. Við renndum hratt yfir helstu túristastaðina og versluðum helling.
    Komum aftur til Noregs á mánudegi og svo komu Ingunn og Berglind út á miðvikudegi og ætlaði Berglind að vera hjá okkur í viku. Það var ýmislegt gert... fórum í tívolí og túristaferð með Berglindi og svo fórum við í Norefjell með Ösp og krökkunum og þar hittum við fjölskyldu frá suðurnesjunum  og gamlan skólabróðir hennar Ölmu mömmu Eika. Ferðin var skemmtileg frá byrjun til enda, fyrir utan aðrar slæmar fréttir sem við fengum út, en einn vinur Eika og kunningi hans lentu í bílslysi á Garðskagavegi og létust báðir. crying
    Við komum svo heim á föstudagskvöldi, og fórum svo í brúðkaup á laugardegi og svo byrjaði skólinn, og við áttum 1 árs afmæli saman í Noregi. big hug
  • Í september var ég bara á fullu í skólanum og að vinna með. Lítið gert annað þá.
  • Í október á ég alltaf erfiðann tíma... núna voru 2 ár síðan að Jói minn lést og fórum við norður í "tilefni" af því.
    Afi átti sextugs afmæli og var haldið upp á það, pabbi varð 39 ára...surprise hehe... neinei grín pabbi minn... þú lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 25. big hug Ingunn systir átti 14 ára afmæli.
  • Í nóvember fékk ég þær fréttir (minnir að það hafi verið í nóv eða lok okt) að Solla systir pabba væri ófrísk og er hún alltaf á sama tíma með þetta og er sett 28 júní... en fyrir á hún Hörpu Sif sem er fædd 26. júní happy gott að skella þessu saman og spara afmælisveislurnar, hehe.. Karen systir átti 11 ára afmæli og ég ákvað svo að vera fyrir norðan um jólin með mömmu og Ingunni.
  • Í desember tók ég svo loks próf eftir önnina og byrjaði að vinna á fullu, í Ljósmyndavörum og í Megasól.
    Fór svo norður 22. des og eyddi jólunum með fjölskyldunni á Ak. Eignaðist litla sæta frænku að morgni aðfangadags sem við fórum svo að kíkja á á jóladag. Kom svo suður og átti frábær áramót heima með pabba, Helenu og krökkunum, ömmu og afa og foreldrum Helenu og auðvitað Eika mínum.

Kannski var þetta ekki í svo stuttum orðum en allavega var árið mitt svona happy og er ég mjög ánægð með það.
Núna í dag byrjar svo skólinn og fékk ég mjöööög góða töflu.. að mínu mati allavega. Á mánudögum byrja ég ekki fyrr en 11:20 og er búin 17:40.
Á þiðjudögum er ég alveg í fríi.
Á miðvikudögum byrja ég kl 8:10 og er til 9:30, fer þá í eina eyðu og er svo frá 11:20 til 17:40.
Á fimmtudögum er ég aftur alveg í fríi.
Á föstudögum byrja ég 9:50 og er til 12:40.
Svo er ég í 2 fögum í fjarnámi og er ég bara sátt með þetta eins og það er.

Svo gerði ég mér nú ekki lítið fyrir og byrjaði í herþjálfun og var fyrsti tíminn kl 6 í morgunsurprise og verður kl 6 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og svo þarf ég líka í ræktina í skólanum svo það er eins gott að spíta í lófana og vera duglegur núna. Verður maður ekki að vera flottur og fit þegar maður útskrifast í vor? big grin En allavega... þetta var erfiður en skemmtilegur tími og held ég að þetta verði bara gaman.

En ég er að hugsa um að segja þetta gott í bili... svona ef einhver hefur nennt að lesa þetta allt saman og fara að taka mig til fyrir skólan... er að þvo þvott svona og nýta tímann sem maður hefur í frí... því ég verð örugglega ekki mikið í fríi þessa daga sem ég hef í fríi í skólanum.... þarf að læra og reyna svo að finna mér vinnu bara þessa daga.

En nóg komið í bili.. endilega skiljið eftir ykkur smá spor ef þið hafið nennt að lesa big grin

knús og kossar big hugkiss


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 16:10:28 / kristjana

Desemberblogg...

Jæja....tími á blogg hjá mér....big grin

Í byrjun desember byrjaði ég í prófum og strax að vinna með. Var að vinna liggur við 24/7... ótrúlega mikið að gera...surprise Mér gekk þrátt fyrir það alveg ágætlega í öllum prófunum, fékk fínar einkunnir.
Í vikunni fyrir jól var frekar mikið að gera þvi ég var ekki alveg búin að öllu og átti eftir að þrífa herbergið og svona áður en ég færi norður, klára að skrifa jólakortin og pakka inn öllum gjöfunum, en þetta hafðist fyrir rest.winking
Mamma og Ingunn komu til landsins 18. desember og var Ingunn upp í Breiðuvík og mamma hjá vinkonu sinni. Svo á föstudeginum 22. des fórum við norður, ætluðum að vera voða snemma í því, ennnnn flugið hjá Gústu frænku seinkaði um klukkutíma frá London og svo "týndust" töskurnar hennar svo hún var ábyggilega í rúman klukkutíma í því að fylla út skýrslur og eitthvað enn meira vesen, en komst loks í bæinn rúmlega þrjú svo við lögðum af stað að verða hálf fjögur. Veðrið var fínt á leiðinni... fyrir utan kviðurnar undir Hafnarfjalli, þær voru freeeeekar sterkar.worried 
Við vorum komnar norður rúmlega hálf átta og skutluðumst þá út í sveit og svo fórum við mamma að heimsækja mömmu og pabba Jóa, þau voru frekar hissa, enda langt síðan ég hef hitt þau.blushing Þar sátum við og hátum spjallað í góða 2 tíma eða svo. Komum svo rétt við hjá Sólrúnu og fórum svo loks heim í háttin.

Á laugardaginn byrjaði ég á því að fara upp í garð til að athuga hvort allt væri í lagi eftir vonda veðrið. Það var allt oltið um koll en sem betur fer ekkert brotið svo ég tók bara með mér engilinn og ætlaði að finna eitthvað til að festa hann betur niður. Ég rölti í gegnum Glerártorg og fór svo til Júlíu minnar í vinnuna, á meðan ég beið eftir Írenu. Svo fórum við Írena og Gulla í smá leiðangur, en ég tók þær með mér í blómaval til að kaupa efni í krans til að setja hjá Jóa mínum og teina til að festa allt niður, en svo náttúrulega kjáninn ég hafði enga aðstöðu til að vefja kransinn svo við stálumst í bílskúrinn hjá tengdó hennar Írenu.big grin Svo skutlaðist ég í garðinn með teinana og vír til að festa engilinn niður en beið með að fara með kransinn þangað til á aðfangadag.
Við skvísurnar hittumst svo aftur um kvöldið, fengum okkur að borða og tókum smá rölt.

Á aðfangadag vaknaði ég snemma, það var hringt heim og okkur sagt að Fanney frænka hefði farið upp á fæðingardeild um morguninn, en mamma hafði þá fengið sms í símann sinn og þar var tilkynnt að lítil jólastelpa hefði fæðst 6:58 á aðfangadagsmorgun, og er hún ekkert smá FALLEG big grin big hug  bara bjútí... eins dags gömul á þessari mynd...

Svo þurfti ég að fara í Brynju að kaupa ís fyrir pabba og senda honum suður með hádegisvélinni. Svo fórum við mamma upp í garð til að fara með kransinn, kerti og batterí í seríuna sem er í erikunum. Það var enginn smá ötröð í garðinum og alveg hellingur af fólki, en svona líka þvílíkt rok surprise Við stóðum í góðan tíma að reyna að kveikja á kertunum en ekkert tókst svo við brunuðum og keyptum nýtt kerti í svona áldollu og zippo kveikjarabensín og þá loksins tókst að kveikja á kertunum. tongue Við hittum Kristjönu mömmu Lilju heitinnar og systur hennar og hjálpuðum þeim með kertin þar sem engir logar kviknuðu. Alltaf jafn gott að hitta nöfnuna mína. happy

Eftir þessar raunir okkar fórum við bara heim og mamma byrjaði á matnum og ég dottaði í smástund á meðan inn í stofu.blushing
Seinnipartinn fór ég aftur upp í garð til að athuga með kertin hvort þau loguðu ekki öllsömul, en þá var löggan komin til að stjórna umferð þarna. Ég rölti smá hring í garðinum og keikti á þeim kertum sem hafði slokknað á hjá "mínu" fólki. Fór til Jóa míns, Dýrleifar, Sigga (pabba vinkonu mömmu), Lilju, Sigrúnar, Sesars og svo til litlu Emilíu Ástu þeirra Jónu og Tómasar.
Svo þegar ég var að fara aftur leit ég yfir garðinn og váááááááá hvað hann var fallegur, endalaust mikið af logandi kertum og allir ljósakrossarnir. winking
Ég var komin heim aftur um hálf fimm og fór þá í sturtu og gerði mig klára fyrir jólin. Við settumst og borðuðum þennan líka góða jólamat. Svo gengum við frá og fórum inn í stofu og sátum smá og spjölluðum þangað til pakkarnir voru opnaðir.

Ég fékk helling af góðum gjöfum m.a.

Utan á liggjandi harðan disk fyrir allar myndirnar mínar, hvítagullshálsmen með 3 demöntum og HUGES bangsa frá Eika
Gullarmband og bol frá mömmu
Lost seríu 2 frá mömmu og Ingunni
15 þús kr. gjafabréf í IKEA og 18 stk glös frá Pabba, Helenu og krökkunum
Kertastjaka frá Gústu og Berglindi
Saltstein fyrir kerti (sem hreinsar loftið þegar hann hitnar) frá Tomma, Larisu og börnum
Capputino sett frá Ömmu Þórhildi
16 þús kr í peningum frá Tengdó
Dúk sem amma bjó til sem á stendur "heima er best" og ostahníf frá Ömmu og Afa
Puma bol, Puma sokka, body&shower lotion og 2 engla frá Jónasi, Helgu og Jóni Grétari
Bodyshop körfu frá Megasól
Pening sem ég á eftir að versla mér gjöf fyrir frá Ömmu og Afa í sveitinni

Þá held ég að það sé upptalið og er ég MJÖÖÖÖG ánægð með allt saman... takk fyrir mig allir... big hug
Eftir pakkaopnunina fórum við Ingunn til Tomma og vorum þar restina af kvöldinu.

Á jóladag vaknaði ég frekar snemma þar sem ég gat ekki sofið fyrir öllu þessu kvefi sem ég er með, svo ég fór bara fram í sófa að horfa á sjónvarpið og var þar þangað til við fórum út. Við byrjuðum á því að heimsækja jólabarnið þar sem hún fékk að fara heim strax á aðfangadag, og þvílíkt bjútí sem hún er og ekkert smá vær, var vakandi allan tíman.
Svo fórum við út í sveit í jólaboð eins og alltaf og alltaf gaman að hitta alla ættingjana og mamma fór með tölvuna sína svo hægt væri að sýna öllum nýja barnið. big grin
Eftir sveitina kíktum við aðeins á Góu frænku og fórum svo heim í hangikjöt. Þaðan fór ég svo heim til Hákons frænda og vorum við þar nokkur að spila langt frameftir.

Á annan í jólum vöknuðum við bara snemma og tókum okkur til fórum upp í garð með kerti og rendum svo við hjá bróður mömmu og svo hjá Tomma til að kveðja liðið og vorum farnar af stað um 12 leitið. Vorum komnar í bæinn um 4 leitið og þá var strax farið í það að hafa sig til fyrir matinn hjá ömmu og afa. Svo eftir hann var bara farið heim undir sæng, kúrt og horft á flóðbylgjumyndina.

Svo núna síðan ég kom heim hef ég bara legið heima á daginn því að ég er svona líka ógeðslega kvefuð og er raddlaus. Röddin að reyna að koma núna og er ég með frekar mikið af fölskum tónum og ekki myndi ég bjóða fólki upp á að hlusta á mig syngja (ef ég væri í þeim pakkanum) haha.... bara ömurlegt...

En ég er að hugsa um að láta þetta nægja í bili...

knús og kossar big hugkiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 14:15:51 / kristjana

Verkefnaskil BÚIN !!!!

JEIJJJJJJJ..... er búin að skila af mér öllum verkefnum á þessari önn... á núna bara 2 próf eftir big grin eitt á morgun og eitt á fimmtudaginn happy

En þetta verkefni tók sko alveg sinn toll og var ég alveg ágætlega lengi að gera það.. en það hafðist.. Byrjaði á þriðjudaginn og var uppi í skóla frá rúmlega 9 til 17 og vann hluta úr því þar, hélt smá áfram þegar ég kom heim um kvöldið og tók svo smá pásu. Á miðvikudaginn ætlaði ég að vera geggjað dugleg... en gerði ekki mikið...surprise Fór bara til Eika í hádeginu og fór svo að snúast smá... finna nýjan jólapappír því sá sem ég keypti í haust var gegnsær...surprise svo ekki var hægt að pakka inn í það.. ég þræddi allar búðir... fór í rúmfó, tiger, hagkaup, söstrene grene, debenhams, pennann, office1 og fleiri búðir í leit að pappír... en fann ekkert sem mig líkaði svo ég endaði bara í IKEA og keypti þar batting eyelashes enda er allt hægt að finna þar sem manni vantar winking 
Þegar sú ferð var búin fór ég að ná í Eika í vinnuna og við brunuðum í ljósmyndavörur og keyptum dv spólu fyrir videocameru svo að ég gæti farið með Hlyn bróður á æfingu og tekið upp smá fyrir verkefnið winking það gekk fínt og náði ég því sem ég þurfti að ná, svo fórum við heim og ég að læra, ég lærði og lærði og var til að verða 2 að læra og fór þá að sofa. Vaknaði svo snemma á fimmtudeginum til að læra smá og fara svo að vinna kl 9. whew! Var að vinna til 18 og var nóg að gera allan daginn, kom svo heim og lærði smá og borðaði og fór svo að vinna aftur kl 20-23 og kom heim og hélt áfram að læra og var aftur til að verða 2. Vaknaði svo aftur snemma á föstudag, eða um 7 og kláraði og skrifaði allt á disk svo ég gæti skilað í hádeginu í vinnunni, sem ég gerði og er ég ekkert smá ánægð með að vera búin með þetta... applause

Á föstudaginn fékk Eiki Gullu frænku til að kaupa Brynjuís og senda suður til okkar og það var æði... fórum til pabba og var kallinn FREEEEEKAR sáttur laughing gott mál...enda besti ís í heimi winking Um á kvöldið fórum við svo bara smá á rúntinn og svo bara heim að kúra, horfðum á mynd sem Eiki náði í á netið og er sko búinn að ná í 20 nýjar myndir allar með íslenskum texta big grin bara geggjað...

Í gær fórum við svo í smá búðarráp áður en ég fór að vinna. Fundum loksins gjöf handa mömmu sem ég ætla að kaupa í dag big grin og fórum svo í IKEA og keyptum einn hlut sem okkur vantar í eina gjöf og þá erum við eiginlega bara búin... ég á eftir að kaupa reyndar handa Eika...surprise
Í dag er svo bara vinna til 17 og svo smá í búðir og svo bara að læra....próf á morgun...

Ennnnn... wwooooowwwww.. ég fór að hugsa út í það i vinnunni á föstudaginn hvað mér þætti langt í jólin... en samt eru það bara 14 dagar....surprise ég á eftir að gera svo mikið... pakka inn öllu... skrifa öll jólakort...og ég er að vinna alla daga þangað til ég fer norður..en þetta reddast... eins og allt annað big grin

Gott í bili...

knús og kossar...big hugkiss


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 16:06:11 / kristjana

Verkefni smerkefni.......

úff... nú er ég búin að sitja í skólanum síðan kl hálf 10 í morgun og er að vinna í verkefni sem ég þarf að klára fyrir föstudaginn... shhiiiiiiiiiat wits' end - New! er að verða brjáluð... er sko komin með ALVEG nóg....
Ég fór heim í morgun og náði í bangsann hann Hlynza... sem við keyptum hana Hlyn í Danmörku og bangsann hennar Karenar...(veit ekki hvað hann heitir) og er að nota þá í verkefnið og ætla svo með Hlyn á æfingu á morgun og taka smá upp þá og vonandi næ ég svo að klára þetta bara annað kvöld eða á fimmtudagskvöldið... big grin Þessi dagur er samt ekkert búinn að vera smá fljótur að líða þegar maður sekkur sér svona ofan í lærdóminn...whew!en um leið og þetta verkefni er búið að þá verður það aðeins auðveldara... þá bara 2 próf eftir....
víííí... þá er mín sátt og getur bara farið að vinna og vinna eins og sækó í des og verið RíkRíkRík.... big grin

En ætla að sýna ykkur smá verkefni hérna... hvernig lýst ykkur á þetta... þetta er s.s hluti af verkefninu sem ég hef verið að vinna að í dag...

MYND 1
MYND 2

Allir að segja sýna skoðun... tongue


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:27:01 / kristjana

Eitt af 3 prófum búið...

Jeijjj... íslensku prófið búið... og vonandi áfanginn líka...big grin annars gekk það bara allt í lagi held ég... þó ég reyndar héldi að margt annað kæmi á prófi en það sem kom...
Þá er það bara enskupróf á mánudaginn næsta og kvikmyndasögupróf á fimmtudaginn þar á eftir... þá er ég búin.
Ég er búin að vinna ALLA helgina nánar tiltekið, fimmtudagskvöld - föstudagskvöld - laugardag - sunnudagskvöld - mánudagskvöld... svo seinkaði ég mér í ljósmyndavörum svo ég fer ekki þangað fyrr en á fimmtudag til að geta klárað verkefni fyrir föstudag.... er svo að vinna næstu helgi líka surprise það er sko nóg að gera...svo verð ég að vinna alla daga fram að jólum, eða þangað til ég fer norður... úfff.. og svo á ég eftir að skrifa 30 jólakort og pakka inn 15 jólagjöfum og kaupa 3 í viðbót winking OMG... alltof mikið að gera og svo stutt í jólin....

En ekki langt í þetta skipti heldur... gott að geta bloggað á hverjum degi en þurfa ekki að segja mikið í hvert skipti winking

Enda á feiri myndum af jólastráknum... litla "frænda" algjör dúlla....



knús og kossar....big hugkiss


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 23:56:25 / kristjana

Undur og stórmerki!!!

Haha....undur og stórmerki gerast....!!! Eiki er kominn með blogg.....haha... rolling on the floor hann sjálfur sem sagðist ALDREI ætla að blogga... bloggið er hér -> Eikilingur

En út í skólann.... nú er allt að klárast... fyrsta prófið á morgun og er það íslenska....svo eru ekkert próf fyrr en í vikunni á eftir og þá á mánudag og svo fimmtudag.. þá er ég búin... og leyfi mér þá að fara í klippingu big grin.... svo byrja ég bara að vinna á fullu á þriðjudaginn og verð að vinna þangað til ég fer norður 22. des. winking 

Mín kát......búin að heimta þorláksmessurölt með Júlíu og Írenu.. eitthvað sem maður gerði alltaf í denn...bara gaman...happy 

En jæja.. ætla ekki að hafa þetta langt núna... þarf víst að halda áfram... eða jafnvel að byrja að læra smá fyrir prófið sem er í fyrramálið nerd

knús og kossar....big hugkiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 13:57:42 / kristjana

Seinasti tíminn fyrir próf...

Úúúfffff púúúúffff.... þá er það seinasti tíminn á þessari önn... og bara prófin eftir. Mikið óskaplega verður gott að komast í smá frí og fara að vinna bara... applause 
Nú á ég í raun bara eitt verkefni eftir í skólanum sem ég þarf svo að skila á föstudaginn eftir rúma viku. Það hýtur að reddast þrátt fyrir próf og mikla vinnu winking Okkur var meira að segja tilkynnt í skólanum í gær að eitt próf sem að við tökum, tökum við líklega bara í tölvunum okkar... og þá á netinu.. hahah, bara fyndið... og við megum hafa öll gögn með okkur og bókina verkefni og allt saman... en í raun er kannski ekki mikið verið að nota það þar sem að þetta er í kvikmyndasögu og prófið snýst megnið um að greina myndbrot og það er lítið hægt að nota verkefni og gögn til þess.

En mig hlakkar til í næstu viku að klára að versla jólagjafirnar pakka þeim inn og skrifa jólakort. Var loksins að panta þau áðan svo að nú bíð ég bara eftir þeim happy

Um helgina ætluðu pabbi og Eiki að fara á sleða... en ég get ekki séð að þeir fari eitthvað langt að minnsta kosti þar sem að það er nú bara 5-6°hiti á miðhálendinu og nánast enginn snjór...surprise En við förum þá bara seinna og öll saman. Sagði við pabba í gær að ég vildi bara fara á milli jóla og nýjárs...og vona ég þá að það verði meiri snjór heldur en er núna. Væri nú ekkert verra ef það væri eins og þegar við fórum einhverntíman á mili jóla og nýjárs upp á langjökul á einum af jeppunum sem pabbi hefur átt og vorum þar með ruslapoka, sleða og gúmmíbát... bara gaman big grin langar að gera eitthvað svoleiðis aftur.

En ég ætla að leggja fyrir ykkur smá verkefni sem að Linda lét mig svara hjá sér áðan....Endilega skellið ykkur í þetta, bíð spennt eftir svörum... big grin

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Gott í bili... knús og kossar big hugkiss


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9

Síðuskóli 2001